Jæja góðir hálsar þið eruð örugglega öll búin að gefast uppá mér og mínu bloggi eða lack of it

en vonum að einhver slysist hérna inn öðru hverju ennþá. En við erum á lífi og höfum það bara mjög gott. Ég er heimavinnandi húsmóðir í augnablikinu eftir að ég hætti í kennó. Já gafst bara upp þetta fjarnám átti sko aldeilis ekki vel við mig félagsveruna. Var ekki alveg að höndla að sitja hérna ein heima alla daga og læra. Er sko alveg að fíla það í botn að vera heima enda ekki eins og manni leiðist skvísur í öllum húsum hérna sem hægt er að heimsækja og gera skemmtilega hluti með. Reyndar er ekkert gert sem kostar peninga á þessum krepputímum en við erum duglegar að hittast og kjafta, höfum alltaf um nóg að tala.
En svo eins og flestir vita er ég ófrísk set þetta bara hér inn ef einhver veit ekki og komin 14 vikur. Þetta er búið að ganga eins og í sögu engin ógleði og ekki neitt og er tilhlökkunin mikil að fá kríli á heimilið. Barnið er væntanlegt 12.maí á afmælisdaginn hennar Evu sem er bara fyndið en þar sem ég geng nú alltaf slatta framyfir er svosem ekki mikil hætta á að hún Eva fái ekki að eiga afmælisdaginn sinn í friði. Þannig að maí mánuður verður busy það verður afmæli, fæðing og ferming 10. maí púff eins gott að safna kröftum fyrir þetta allt saman. En við erum mikið að spá í fyrst ástandið er svona að kíkja á klakann í sumar og halda veislu fyrir kappann og kannski bara skira einhversstaðar þarna í leiðinni líka. Unnar er bara hress og kátur er staddur í Kaupmannahöfn eins og er í nokkra daga þar sem pabbi hans er að flytja til 'Islands og síðasti séns að heimsækja hann þangað. Hann er bara á fullu í boltanum eins og alltaf og er á leiðinni með liðinu til Manchester í desember að sjá Man utd-AAB ekki leiðinlegt það. Skólinn gengur bara svaka vel og er bekkurinn á leiðinni til Lokken í action hás á föstudaginn í keilu og go kart.
Eva skvísa er líka hress og kát og plummar sig vel í nýja skólanum. Var að byrja í fimleikum voða stuð.
Arnar greyjið er ekki alveg jafn hress búinn að vera að berjast við nýrnasteina og var að koma úr einhverri aðgerð og er búinn að vera ansi slappur vonum að það fari nú eitthvða að lagast.
Síðustu helgi var haldið velkomst ball hérna á vegum karlafélagsins og tókst það ekkert smá vel. Rífandi stemming og allir í góðum gír.
En jæja vona að það líði aðeins styttra á milli blogga
knús og kossar
Ranný og bumbukrílið